|
|
27.01.2012 20:50:12 / heidrth
Fimmtudagurinn var notaður til lærdóms í stað þess að púla. Eina hreyfingin var því hjólatúr niður í skóla og heim aftur, + nokkrar þvottahúsferðir. Mér finnst ég einhvernveginn varla gera annað en að þvo eftir að ég byrjaði að vera alltaf að þvælast í þessa líkamsrækt.
Í dag hins vegar fórum við bæði hjónakornin í ræktina. Fyrst kallinn og svo ég. Nauðsynlegt að komast svona á meðan að stubburinn sefur, þar sem að ræktin lokar svona snemma um helgar.
»
25.01.2012 21:30:33 / heidrth
Ræktin í gær og ræktin í dag, er að ekki góð byrjun?
Núna var sem sagt viku 2 að ljúka og samkvæmt "the biggest looser" sjónvarpsáttunum, þá er sú vika oft sú vika þar sem þátttakendur missa fæst kíló. Ég er engin undantekning frá reglnni, hins vegar er ég ekki lengur alveg eins dauð eftir augnablik á skíðavélinni og hef mun meiri orku til að lyfta líka. Og eins og ég er búin að segja svo oft við sjálfa mig undanfarna daga.... góðir hlutir gerast hægt.
Annars svindlaði ég í gær og borðaði ótrúlega gott hallon muffins. Það var eflaust eitt það besta muffins sem ég hef nokkurn tímann smakkað
»
23.01.2012 18:43:52 / heidrth
Í gærmorgun stakk eiginmaðurinn til Gautaborgar en kom aftur í dag. Í gær var okkur líka boðið í afmæli (mmmmmm kökur), og svo í mat um kvöldið (mmmmm hamborgari). En þar sem ég var ein heima með ormanna þá missti ég af saumó. En þrátt fyrir engan saumó þá náði ég samt sko búin að éta yfir mig um helgina.
En núna er bara snjór og hálka, svo það er ekkert freistandi að fara út... en ég ætla nú samt að láta mig hafa það og dröslast í ræktina.
»
20.01.2012 23:09:19 / heidrth
Í 100 ml af kóki eru 45 hitaeiningar. Það þýðir að í 33cl dós eru um það bil 140 hitaeiningar. EF ég drekk svo að meðaltali 3 dósir á dag, þá gera það 420 kaloríur á dag, eða 2940 kaloríur á viku hverri... Í algjörri hvíld þarf ég ekki nema um 1500 kaloríur til að lifa daginn af, svo ef við miðum við að ég hreyfi mig örlítið, þá er þetta 1/4 af hitaeiningaþörf dagisns - algjörlega næringasnauðar hitaeiningar. Samkvæmt þessum meðaltals útreikningum, þá hef ég sparað mér 5040 hitaeiningar síðustu tæpu 2 vikur, það er síðan ég hætti að drekka gos. Hvað ætli það geti umbreyst í mörg kíló??????
Að öðru þá fór hjólið mitt í viðgerð í dag. Ja eiginlega frekar allsherjar smurningu og skoðun, og lagfæring á bremsunum. Þar sem ég er allt í einu farin að hjóla í skólann 2 í viku (já og heim aftur) þá gengur ekki lengur að vera á hálf tjónuðu hjóli.
En þar sem stubburinn lagði sig ekkert í morgun, og tók bara einn lúr í dag, þá varð ekkert úr ræktarferð hjá mér í dag. Ég labbaði nú samt í búðina, hjólaði á verkstæðið, labbaði heim aftur og labbaði svo líka að sækja Malenu í leikskólann, svo ég hef nú svo sem ekkert setið kjurr í allan dag þrátt fyrir að hafa ekki farið í ræktina. Gallinn við svona skreppiferðir er hins vegar að þær eru allar tiltölulega stuttar, og þótt þær séu margar, þá held ég að það geri afskaplega lítið gagn, svona þegar á lengri tíma er litið. Þess vegna hugga ég mig bara við það að það er föstudagskvöld, en ég drakk ekkert gos og keypti ekkert fredagsmys (föstudagsnammi) heldur.
»
19.01.2012 21:56:21 / heidrth
Í gær fékk eiginmaðurinn að fara og horfa á handboltaleik, og því varð ekkert um ræktarferð hjá mér þann daginn. Í staðinn hjólaði ég samt niður í skóla og svo heim aftur, dó reyndar næstum því úr mæði á leiðinni þar sem hjólið mitt er hálf fast í handbremsu. Þarf nauðsynlega að láta fara yfir hjólið og skoða það. Svo þarf að stilla stýrið og sætið, svo það passi mér almennilega. Ég er ennþá að læra á þetta hjól, og sakna gömlu viktoríu því alveg ótrúlega mikið þessa daganna.
Í dag var ég samt sæmilega dugleg og skottaðist í ræktina, og líka 3 ferðir í þvottahúsið, þær verða að teljast með, trúi ekki öðru.
Annars sé ég að það er verið að loka blogcentral, svo ég þarf að færa bloggið mitt eitthvert annað, eftir öll þessi ár... fæ reyndar nokkrar vikur til þess, svo við skulum sjá til, kannski verð ég hætt að nenna þessu hvort sem er.
»
17.01.2012 22:30:16 / heidrth
Ég er ekki frá því að hin stanslausa naslþörf sem hefur heltekið mig síðustu árin er aðeins að láta undan, HÚRRA.
Annars fór ég í skólann í dag, nú er ég að fara að læra sænskan framburð, og líst bara alveg ferlega vel á. Finnst þetta vera eitthvað sem mun virkilega nýtast mér í framtíðinni (annað en margt af hinu sem ég hef lært í gegnum tíðina).
Svo hreyfing dagsins fólst í því að hjóla niður í skóla (og heim aftur), hjóla í ræktina, taka þar hálftíma í brennslu og hálftima í annað og hjóla svo heim aftur.
Hef hins vegar tekið eftir þeim galla (ef galla skyldi kalla) við allar þessar ræktarferðir, að þvottahúsferðunum fjölgar hlutfallslega líka, þar sem núna þarf ég alltaf að vera að þvo einhver leikfimisföt
»
16.01.2012 22:42:15 / heidrth
Í dag var fyrsti dagurinn á nýrri skólaönn. En stóra stelpan mín fékk þar af leiðandi að vera lengur í leikskólanum, henni til mikillar gleði, því að þá gat hún verið samferða vini sínum heim (sem reyndar varð til þess að hún kom ekkert heim heldur var boðið í heimsókn). En á morgun er minn fyrsti skóladagur. Ég er búin að skrá mig í sænskukúrs, sem byrjar á morgun, en ég skráði mig svo seint, að ég veit það ekki fyrr en á morgun hvort ég fæ að vera í honum. En má samt mæta fyrsta daginn. Mastersritgerðin byrjar svo ekki formlega fyrr en í mars, en ég fæ þó á morgun fyrstu uplýsingarnar varðandi það verkefni, og ætti því vonandi að geta byrjað fljótlega að koma saman einhversskonar beinagrind og ákveða efnið og slíkt. Ég þarf allavega að gefa mér meiri tíma en gert er ráð fyrir, þar sem ég mun ekki geta verið í fullu námi frá mars til maí... þar sem litli stubbur verður nú að fá einhverja athygli líka. Að heilbrigðismálum, þá labbaði ég fyrst 3 ferðir í þvottahúsið, svo í búðina, svo í leikskólann og loks hjólaði ég í ræktina og eyddi kvöldina þar. Þarf að fara að muna að finna skrefamælinn minn svo ég hafi einhverja hugmynd um hvort að litlu skreppferðirnar séu að gera eitthvað gagn eða ekki. Litli stubbur gerði mér þann grikk að vakna klukkan 6:30 í morgun. Lagði sig svo í 3 tíma í morgun í vagninum sínum og klukkutíma seinnipartinn, svo hann er búin að fá að leggja sig en ekki ég. Segji því þessum degi lokið hér með, góða nótt.
»
14.01.2012 16:11:31 / heidrth
Líkamsrækt dagsins var fólgin í tveimur göngutúrum með vagninn, annar var 20 mín en hinn bara um 7 mín. Einnig ryksugaði ég íbúðina með litla gaurinn í poka á bakinu, skúraði og skrapp svo einar 4 ferðir í þvottahúsið (tröppuþrek).
Í staðinn fyrir að baka köku í köku með kaffinu borðaði ég svo bara 2 hrökkbrauðssneiðar með osti og grænmeti. Dóttirin er í heimsókn hjá vinkonu sinni svo hún kvartaði ekkert  Í kvöldmat verður svo lax með einhverju skemmtilegu meðlæti.
En hvernig gengur hjá ykkur?
»
13.01.2012 22:58:32 / heidrth
sagði eiginmaðurinn í hádegismatnum í dag þegar hann komst að því að ég hafði keypt 17% brauðost í stað hins venjulega 24%, "þetta er eins og pappi". Oststykkið er hins vegar mjög stórt, svo að hann hlýtur að vera búin að venjast bragðinu þegar það klárast
»
13.01.2012 15:15:07 / heidrth
Núna í janúar okkar eigin Kjamma "stærsti missirinn" eða "the biggest looser". Nokkrar stelpurnar hérna ákváðu að fara í átak núna fram að páskum og buðu til keppni, með þátttökugjaldi og verðlaunapotti, svo það er til mikils að vinna. Þar sem ég hef miklu að tapa, þá gróf ég upp smá keppnisskap og hef hafið þátttöku, farið í þar til gerðar mælingar og meira að segja keypt mér kort í ræktina. Svo núna verður bara bloggað um líkamsrækt, hollt fæði og annað því um líkt. Hér hefur nefnilega verið hætt að kaupa gos og nammi (og ég verð að viðurkenna að mér fannst svolítið skrítið að fara í búðina og fylla ekki uppí burðargetuna með kóki). En já, þið megið endilega gefa mér góð ráð varðandi matarræði og hreyfingu, ja eða bara smá upp-pepp... Næstu 12 vikurnar verða nefnilega alveg ferlega skemmtilegar 
En að öðru þá byrjar skólinn í næstu viku, það verður eflaust ansi skemmtilegt. Ég reikna með að sækja um leikskóla fyrir stubbinn frá og með mánudeginum 30 apríl, en skóla lýkur ekki fyrr en í byrjun júní. Það verður því fjör að brúa tímabilið þangað til í maí  En ég er farin að hlakka til að hafa dagskrá sem einkennist af einhverju öðru heldur en tiltekt og þrifum (enda svo sem engin þörf fyrir dagskrá fyrir svoleiðis lagað).
Þar til næst...
»
11.01.2012 12:24:11 / heidrth
Já, í dag er dagurinn.
Vinkonur mínar hérna á svæðinu stofnuðu til átaks á meðal okkar mafíumeðlima, til að stuðla að bættri heilsu hér á svæðinu... þær sem vilja vera með borga inngöngugjald og fara í mælingu. Mín mæling var í dag, samkvæmt henni er ég í vægast sagt lélegu formi og þó nokkuð mörgum árum eldri en ég raunverulega er. En því skal nú breytt, ekkert slugs, ekkert svindl og engin óhollusta.
»
16.12.2011 14:48:27 / heidrth
Já litli stubburinn minn er farinn að labba meðfram öllu, ótrúlega duglegur strákur. Hann stendur á fætur upp við flest húsgögn, og sest svo niður þegar hann kemst ekki lengra, eða sér eitthvað fallegt. En ennþá borðar han líka allt sem hann nær í. Dóttirin er alveg að verða 6 ára. Svakalega stór og dugleg stóra systir, hefur stundum mikinn áhuga á að hjálpa til, rétta honum dót, leika eða gefa honum að borða. Annars lokar hún sig bara inní herbergi til að fá frið frá honum. Ég er búin að skrá mig í meira nám í vor, svo það stefnir allt í að þriðji masterinn verði kominn í vor. Annars gerist ekki mikið í mínu lífi, ég er bara að laga til, þrífa, sinna börnunum og eitthvað að reyna að ala þau upp á öðru hvoru.
»
22.08.2011 17:21:23 / heidrth
sem langar í flott barnaföt eftir íslenska hönnuði þá mæli ég með þessari síðu: dubbi.se
Annars erum við bara hress, sumarið að verða liðið og litli stubburinn næstum farin að skríða og sitja, hann þarf bara að stækka og styrkjast aðeins meira, en hann er farin að ná að stinga rassinum uppí loftið.
Annars langar dótturinni rosalega mikið til að fá bréf í póstinum, svo það væri gaman ef einhver sæi sér fært um að senda henni bréf eða pakka eða kort eða eitthvað slíkt.
»
28.04.2011 09:09:03 / heidrth
Þessi stubbur fær allavega pottþétt engin verðlaun fyrir stundvísi!
Kúlan er orðin 42 cm, stubbur ætti því að vera um 4300 gr þessa daganna (samkvæmt mælingum og útreikningum), ljósan sagði mér líka að stór börn vaxa ekki hægar á síðasta sprettinum eins og litlu börnin gera, helur gefa þau venjulega aðeins í og stækka hraðar!
Ummálið er orðið 125 cm og er mikð af óléttufötunum orðið hreinlega of lítið! Annars er svo heitt hérna þessa daganna að ég er búin að pakka öllum peysum og yfirfötum, sé ekki fram á að þurfa að nota það meira að sinni.
»
19.04.2011 15:20:34 / heidrth
3 dagar í settan dag! Annars er stubbur bara hress, bumbustærðin komin uppí 41 cm (sem er 6 cm meira heldur en hjá hinni venjulegu sænsku mömmu)... það eru bara 2 strik eftir á skalanum á mæðraskránni minni, svo ef að stubbur fer ekki að koma í heiminn, þá hættir ljósan mín að geta sett inn stærðina á honum. Sumarið er annars komið hér í Lundi. Mælirinn minn er reyndar í sól, en hann sýnir 24,6 gráður eins og er... tengdó er búin að liggja léttklædd í sólbaði í mest allan dag og í augnablikinu er eiginmaðurinn úti að vinna í "taninu". Ég er því búin að grafa upp sólarvörnina og fara einnig með einn brúsa í leikskólann, svona svo að hægt sé að maka á barnið áður en hún fær að leika úti allan heila daginn í sólinni. Ég er farin að safna freknum, er komin með fleiri en hægt er að telja, bíð því spennt eftir því að þær fari að ná saman svo ég verði bara brún í staðin fyrir að vera rauð með freknur...  Næst á dagskrá er svo 3D sónar á morgun. Eftir það verður það bara væntanlega áframhaldandi sólardýrkun... ég reyndar skammta mér bara 10mín hér og þar svona til að forðast bruna... enda ætlast ég til þess að þetta veður sé komið til að vera...
»
Síður: 1 2 3 ... 45
|
Heimsóknir
Í dag: 16 Alls: 102546
Dagsetning
28. janúar 2012
|